top of page

Upplýsingar

Áfengisbannið

Áfengi var bannað víða um heiminn á fyrri hluta 20. aldar. Á Íslandi var áfengisbann sett 1915 og aflétt 1935 en bjórbanninu var ekki aflétt fyrr en 1989.
Í Bandaríkjunum var áfengisbann sett á í kringum 1919-1933 og flokkaðist það bara undir sölu og framleiðslu áfengis en það var undantekning á lyfjum. Það voru samt engar reglur um að það væri ólöglegt að drekka áfengi. Þó svo að sala á áfengi var bönnuð var það samt enn fáanlegt á ýmsum stöðum og fólk var líka með einkabari þar sem áfengir drykkir voru seldir. Þó að bannið var mjög umdeilt var það stutt af mörgum ólíkum hópum. Framfarasinnar töldu að bannið myndi bæta samfélagið, það gerðu einnig konur, suðurríkjamenn, þeir sem búa í dreifbýli og Bandaríkjamenn af afrískum uppruna. En einnig má geta þess að Maine var fyrsta fylkið sem sett áfengisbann á en það var í kringum 1846. Þótt áfengisbanninu í Bandaríkjunum var aflétt í kringum 1930 eru enn nokkuð hundruð bæir víða í Bandaríkjunum sem hafa ekki enn aflétt banninu. Einn af þeim bæjum er Haddonfield í New Jersey sem bannar enn sölu og kaup á áfengi. Síðustu kosningar um að aflétta banninu þar var fyrir 40 árum og þá var því hafnað.
Áfengisbann var sett á í Finnlandi árið 1919 og var því aflétt í kringum 1931. Á meðan það stóð yfir var bannað að selja eimaða drykki til þess að reyna að beina íbúum í  að drekka frekar bjór sem er með minna áfengismagn en eimaðir drykkir.

Glæpir

Eitt af frægustu Amerísku mob stjórum allra tíma, Al Capone, einnig þektur sem "Scarface," fékk sitt vald á tímum Áfengisbannsins. Áður enn hann var sentur í Alcatraz fángelsi árið 1931 fyrir skattsvik, náði hann að safna sér up að $100 milljón og var ábyrgur á óteljandi morðum.

Al Capone náði valdinu sínu með næturklúbbum, hóruhúsum, fjárhættuspila húsum, ölgerðum og "speakeasies". 

Eftirfarandi pdf. skjal inniheldur glærusýningu sem var partur af lokaverkefni 10. bekkjar vorið 2015.

bottom of page